Viðskipti innlent

1.500 fyrirtæki stefna í þrot

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.
Gert er ráð fyrir að rúmlega 1.500 lítil og meðalstór fyrirtæki stefni í gjaldþrot.Rúmlega 500 fyrirtæki eru enn í skoðun vegna skuldaúrvinnslu.

Þetta kom fram í máli Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, í umræðum á þingi um stöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Samkvæmt nýlegu yfirliti frá fjórum stærstu bönkunum eru sex þúsund lítil og meðalstór fyrirtæki með skuldir á bilinu 10 til 1.000 milljónir króna. Þetta eru viðmiðin sem verkefnið Beina brautin, sem er fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja, nær til. Fari 1.500 fyrirtæki í þrot er um fjórðung þessara fyrirtækja að ræða.

„Þetta eru skuggalegar tölur. Við skulum ekki gleyma því að verkefnið Beina brautin, sem verið var að setja á laggirnar, hafði það markmið að reyna að bjarga fjárhag minni og meðalstórra fyrirtækja með skuldir allt að einum milljarði króna. Þegar niðurstaðan er sú að fjórða hvert þeirra stefni þráðbeint í gjaldþrot eða jafnvel þriðja hvert, þar sem óvissa er um afdrif 500 til viðbótar, er um mikið fjárhagslegt tjón að ræða fyrir fjármálastofnanir og ýmsa aðra, auk þess sem það getur ekki haft í för með sér annað en aukið atvinnuleysi,“ segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem hóf umræðuna um skuldaúrvinnsluna.

Tæplega tvö þúsund fyrirtækjanna eru ekki í greiðsluvanda, að því er efnahags- og viðskiptaráðherra greindi frá. „Fyrirtæki í skuldagreiðsluvanda eru talin um fjögur þúsund. Þar af er gert ráð fyrir að vandi um eitt þúsund fyrirtækja leysist með Beinu brautinni, um 670 til viðbótar fái úrlausn með lengingu í lánum og 280 þar til viðbótar fái úrlausn með 25 prósenta lækkun á höfuðstól.“

Einar K. Guðfinnsson segir menn sammála um að atvinnusköpunin sé hlutfallslega mest hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum.

„Þeim mun alvarlegra er það að 1.500 þeirra stefni í þrot. Ég held að menn verði að skoða þessa hluti alveg upp á nýtt.“- ibs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×