Erlent

Yfir tuttugu konur ákærðar

Mynd/Haraldur Jónasson
Einn karlmaður og 23 konur voru í gær ákærð í Falun í Svíþjóð vegna barnakláms. Karlmaðurinn sendi konunum, sem eru á aldrinum 37 til 70 ára, myndir og myndbönd sem sýndu meðal annars börn beitt grófu kynferðislegu ofbeldi.

Lögreglan komst á slóðir mannsins í fyrrasumar eftir vísbendingu. Sumar kvennanna eiga yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsisdóm en maðurinn allt að sex ára fangelsi.- ibs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×