Gríðarlegt áfall fyrir forseta Afganistans 13. júlí 2011 05:00 Hálfbróðir forsetans á fundi með stuðningsmönnum sínum í Kandahar fyrir tveimur árum. nordicphotos/afp
Ahmed Wali Karzai, hálfbróðir Hamids Karzai Afganistansforseta, var myrtur á heimili sínu í Kandahar, höfuðstað samnefnds héraðs í Afganistan. Ahmed Wali Karzai var valdamikill í héraðinu og hefur lengi verið sakaður um djúpstæða spillingu, sem nái til forsetans sjálfs og dregur meðal annars úr trausti Vesturlanda til hans. Talibanahreyfingin segist bera ábyrgð á morðinu, en hún varð til í Kandahar-héraði og þar voru jafnan höfuðstöðvar hennar meðan talibanar réðu í Afganistan. Yfirvöld í Afganistan segja banamann Karzais vera Sardar Mohammed, sem naut fyllsta trausts hans og var fyrrverandi lífvörður elsta Karzai-bróðurins. Mohammed er sagður hafa farið heim til Karzais til að biðja hann að undirrita pappíra. Meðan hann var að undirrita skjölin tók Mohammed upp byssu og skaut hann. Fréttirnar af láti Ahmeds Walis bárust þegar Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti var í heimsókn hjá Karzai forseta. „Svona er lífið í Afganistan,“ sagði Karzai þegar hann skýrði frá þessu á blaðamannafundi með Sarkozy. „Í húsum Afganistans búum við öll við þjáningar og von okkar er sú, ef Guð lofar, að afganska þjóðin losni við þessar þjáningar og á komist friður og stöðugleiki.“ - gb
Mest lesið Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Innlent Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Innlent Sagði Harris nýlega „orðna svarta“ Erlent Samkomulag í höfn við höfuðpaura hryðjuverkaárásanna 11. september Erlent Viðvörun gefin út vegna úlfs sem beit stúlku og drap púðluhund Erlent Besta veðrið um verslunarmannahelgina? Veður Yfir hundrað handteknir í óeirðum í Lundúnum Erlent Ók á mann og stakk af Innlent „Ég hef látið orð út úr mér sem hefðu átt að vera ósögð“ Innlent Sautján ára ákærður fyrir morðið á stúlkunum í Southport Erlent Fleiri fréttir Nafngreina árásarmanninn til að stemma stigu við upplýsingafalsi Kom að hylla forsetann en endaði í kistu við fætur hans Segja hægt að koma í veg fyrir eða seinka um helmingi Alzheimers tilvika Yfirmaður hernaðararms Hamas sagður hafa fallið í árás Ísraela Sautján ára ákærður fyrir morðið á stúlkunum í Southport Viðvörun gefin út vegna úlfs sem beit stúlku og drap púðluhund Samkomulag í höfn við höfuðpaura hryðjuverkaárásanna 11. september Sagði Harris nýlega „orðna svarta“ Yfir hundrað handteknir í óeirðum í Lundúnum Ekki miklar líkur á meiriháttar milliríkjaátökum „Glæsilegur forystumaður sem hreif fólk með sér“ Hvalavinurinn stendur frammi fyrir allt að fimmtán ára fangelsisvist Maðurinn sem greindi frá andláti Elísabetar II játar barnaníð Drápið á Heniyeh vekur hörð viðbrögð og ótta um stigmögnun Tugir lögregluþjóna slasaðir eftir óeirðir öfgamanna í Southport Að minnsta kosti 973 börn frumbyggja létust á heimavistarskólum Fyrsti kosningafundurinn með varaforsetaefninu á þriðjudag Pólitískur leiðtogi Hamas ráðinn af dögum í Íran Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Ísraelar í hefndaraðgerðum gegn Hezbollah í Líbanon Nokkur dauðsföll eftir að þyrla brotlenti á svínabúi Skammast sín vegna skotárásarinnar Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Ber ekki vitni í spillingarrannsókn á eiginkonu sinni Hermenn sakaðir um að misþyrma palestínskum fanga kynferðislega Þriðja stelpan látin í Southport Fjöldamorðingi í My Lai látinn Grunar vinstriöfgamenn um græsku Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráði á þrotum Sjá meira