Innlent

Tax-Free afsláttur verði skýrari

Tax-Free afsláttur Hagkaupa nemur ekki 25,5 prósentum heldur 20,32 prósentum.
Tax-Free afsláttur Hagkaupa nemur ekki 25,5 prósentum heldur 20,32 prósentum.
Kvartanir bárust til Neytendastofu vegna svonefndra Tax-Free daga Hagkaupa. Kvartanirnar sneru að því að neytendur voru óánægðir með að fá aðeins 20,32 prósenta afslátt af vörum á Tax Free-dögum, en þeir töldu sig eiga rétt á 25,5 prósenta afslætti, sem er prósentuhlutfall virðisaukaskatts. Frá þessu er sagt á vef Neytendasamtakanna.

Neytendastofa segir í úrskurði að nauðsynlegt sé að tilgreina prósentuhlutfall afsláttar skýrlega, bæði á sölustað og í auglýsingum, þannig að fram komi að afslátturinn nemur í raun 20,32 prósentum. Engar athugasemdir voru gerðar við notkun Hagkaupa á hugtakinu Tax Free.

- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×