Erlent

SÞ dreifir matvælum til hungraðra barna í Sómalíu

Hin fimm ára Farhiya Abdulkadir er meðal þeirra þúsunda barna sem búa nú við mikinn skort á þurrkasvæðunum í Austur-Afríku. Sameinuðu þjóðirnar hafa nú hafið flutning á matvælum til vannærðra barna í Sómalíu.
Hin fimm ára Farhiya Abdulkadir er meðal þeirra þúsunda barna sem búa nú við mikinn skort á þurrkasvæðunum í Austur-Afríku. Sameinuðu þjóðirnar hafa nú hafið flutning á matvælum til vannærðra barna í Sómalíu. Mynd/ap
Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna (WFP) hóf í gær dreifingu á matvælum til bágstaddra á þurrkasvæðunum í austanverðri Afríku.

WFP telur að um 11,3 milljónir manna séu hjálparþurfi á landamærum Sómalíu, Keníu og Eþíópíu, en þar hefur orðið uppskerubrestur og búfé drepist í verstu þurrkum sem orðið hafa á svæðinu í sextíu ár.

Alls fluttu WFP um tíu tonn af næringarbættu hnetumauki til Mogadisjú, höfuðborgar Sómalíu, í gær, en sá skammtur ætti að nægja til að hjálpa um 3.500 vannærðum börnum í einn mánuð.

Ástandið er verst í Sómalíu þar sem borgarastyrjöld hefur hamlað hjálparstarfi. Skæruliðahópurinn al-Shahab hefur til dæmis meinað WFP að starfa á svæðum sem lúta þeirra stjórn. Rauði krossinn hefur þó fengið að athafna sig á öllum svæðum.

Hundruð þúsunda sem eru hjálparþurfi í suðurhluta Sómalíu hafa flúið heimkynni sín og leitað til höfuðborgarinnar eða suður yfir landamærin til Keníu þar sem eru nú fjölmennustu flóttamannabúðir heims.

Chaliss McDonough, talskona WFP, segir að fleiri sendingar séu fyrirhugaðar á næstu vikum þar sem mikið ríði á. Um átján þúsund sómalísk börn þjást þegar af vannæringu og er óttast að sú tala geti hækkað upp í 25 þúsund innan tíðar.

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hefur einnig hafið bólusetningarátak á flóttamannasvæðunum og vonast til að geta bólusett yfir 300 þúsund börn á næstu tveimur vikum til að koma í veg fyrir að smitpestir líkt og bólusótt og mislingar brjótist út, en börnin munu einnig fá vítamín og ormalyf.

Sameinuðu þjóðirnar hafa sett sér það takmark að safna 180 milljörðum króna til hjálparstarfsins á næstu 12 mánuðum, en söfnunar-átak meðal almennings hér á landi hefur gengið vonum framar.

Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær hafa tugir milljóna þegar safnast hjá UNICEF á Íslandi, Rauða krossinum, Barnaheill og Hjálparstarfi kirkjunnar.

Í tilkynningu frá UNICEF í gær kom fram að hátt í nítján milljónir hefðu safnast til styrktar málefninu og alls hefðu hátt í sjö þúsund einstaklingar látið fé af hendi rakna.

Sú upphæð jafngildir nær 300 þúsund skömmtum af næringarbættu hnetumauki fyrir vannærð börn.

Enn er tekið við framlögum og má finna upplýsingar um styrktar-símanúmer á heimasíðum ofangreindra samtaka og stofnanna.

thorgils@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×