Tíska og hönnun

Leðurkjólatíska í Hollywood

Blake Lively tók sig vel út í þessum skæra leðurkjól.
Blake Lively tók sig vel út í þessum skæra leðurkjól.
með vösum Jennifer Aniston var afslöppuð í leðurkjól með hendur í vösum.
Leður hefur heldur betur verið að ryðja sér til rúms á tískupöllunum undanfarið og nú hefur leðrið skilað sér á rauða dregilinn. Kjólar úr þessu sterka efni eru greinilega vinsælir hjá stjörnunum, sem keppast um að skarta glansandi leðurkjólum við fín tilefni. Merki á borð við Hermés og Chloe voru með litríkt leður í bolum, kjólum, pilsum og buxum í vetrarlínum sínum fyrir komandi haust og því þess virði að halda augunum opnum fyrir fögrum leðurflíkum.

Brúnt Sænska leikkonan Malin Åkerman var glæsileg í leðurkjól með flottu sniði.
tískufyrirmynd Nicole Richie hefur alltaf þótt smart til fara og fer þessi svarti leðurkjóll með háum kraga henni vel.
Rautt Leikkonan Elisabeth Banks dró að sér athyglina í hárauðum kjól.
Alklæðnaður Að vera klæddur i leður frá toppi til táar er vetrartískan að mati tískuhússins Hermés.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.