Innlent

Fá fjórar vikur til að taka til

Ósómi Alls konar drasl safnast upp á lóð við Steinhellu í Hafnarfirði. Bæjaryfirvöld hafa gefið eigendum fjögurra vikna frest til úrbóta áður en dagsektir verða lagðar á. Fréttablaðið/Stefán
Ósómi Alls konar drasl safnast upp á lóð við Steinhellu í Hafnarfirði. Bæjaryfirvöld hafa gefið eigendum fjögurra vikna frest til úrbóta áður en dagsektir verða lagðar á. Fréttablaðið/Stefán
Margs konar rusl hefur safnast upp á lóð við Steinhellu í Hafnarfirði undanfarið, eigendum nærliggjandi fyrirtækja til lítillar ánægju. Bílhræ, glerbrot og spýtnabrak er meðal þess sem liggur á lóðinni.

Bjarki Jóhannesson, skipulags- og byggingafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, segir eigendur lóðarinnar fengið fjögurra vikna frest til að koma lóðinni í rétt horf.

„Næsta skref í málinu er að leggja dagsektir á eigendur,“ sagði Bjarki, en bætti því við að það gæti orðið torsótt, þar sem eigendur lóðarinnar munu vera í gjaldþrotaskiptum.

„Nýir eigendur munu taka við kröfu um úrbætur, og hefur oftast gengið betur að eiga við slíka aðila en þá fyrri,“ segir Bjarki Jóhannesson. - þj


Tengdar fréttir

Flaug til Noregs í yfirheyrslur

Breski þjóðernissinninn Paul Ray kom til Óslóar í gær til að fara í yfirheyrslur hjá lögreglu vegna hryðjuverkanna í Noregi 22. júlí. Ray kom sjálfviljugur til landsins til að ræða við lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×