Viðskipti innlent

Tapa eftir sölu á hlut í Össuri

Fjárfestingarfélagið Eyrir Invest fór úr hagnaði í fyrra í tap í ár. Fréttablaðið/Anton
Fjárfestingarfélagið Eyrir Invest fór úr hagnaði í fyrra í tap í ár. Fréttablaðið/Anton
Fjárfestingarfélagið Eyrir Invest tapaði 13,4 milljónum evra á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta jafngildir 2,2 milljörðum íslenskra króna. Á sama tíma fyrir ári nam hagnaður félagsins 3,3 milljónum evra.

Ráðgjafarfyrirtækið IFS Greining bendir á að afkomuna megi rekja til taps af sölu hlutabréfa í Össuri miðað við bókfærða stöðu hlutarins um áramótin. Eyrir seldi hlutinn í maí fyrir níu milljarða. Stærsta eign Eyris Invest er um 35% hlutur í Marel. - jab






Fleiri fréttir

Sjá meira


×