Innlent

Ísfólkið verður Ísþjóðin

Ragnhildur Steinunn ákvað að leyfa innihaldi þáttanna að njóta sín í stað þess að láta allt snúast um nafn þeirra.
Ragnhildur Steinunn ákvað að leyfa innihaldi þáttanna að njóta sín í stað þess að láta allt snúast um nafn þeirra.
Lausn er fundin á deilu norska rithöfundarins Margit Sandemo og Ríkissjónvarpsins vegna sjónvarpsþáttarins Ísfólkið með Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur. Þátturinn mun heita Ísþjóðin með Ragnhildi Steinunni.

Fréttablaðið greindi frá þessu allsérstaka máli á laugardaginn en skáldkonan var ekki par sátt við að RÚV hygðist nefna nýjan sjónvarpsþátt þessu nafni en frægur bókaflokkur Sandemo heitir einmitt Ísfólkið.

„Ég er bara mjög ánægð að RÚV skuli hafa hlustað á okkar málstað og tekið athugasemdir okkar til greina. Þetta er bara mjög flott og fínt nafn og passar þættinum betur," segir Sigrún Halldórsdóttir, útgefandi Sandemo.

„Við ákváðum að fara þessa leið og ég vona svo sannarlega að enginn eigi einkaleyfi á Ísþjóðinni," segir Ragnhildur Steinunn. Hún segist hafa fengið frjálsar hendur frá Ríkisútvarpinu og raunar sjálfdæmi í málinu og hún hafi ákveðið að láta hagsmuni þáttarins ráða för.

Ísfólkið verður Ísþjóðin og því ætti Margit Sandemo að geta sofið rótt.
„Við ákváðum að breyta þessu fyrst þetta er svona mikið tilfinningamál, ég vil fyrst og fremst að innihald þáttanna fái að njóta sín."

Í gær var síðan unnið hörðum höndum að því að breyta öllu kynningarefni þáttanna og „lógói".

„Þetta er án nokkurs vafa með því áhugaverðasta sem ég hef lent í á mínum sjónvarpsferli, þetta mun seint gleymast."- fgg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×