Innlent

Þúsundir flytja milli skóla

Frá síðasta vori að skólabyrjun nú í haust fluttu 203 grunnskólanemendur í Reykjavík úr landi en 3.207 nemendur fluttu á milli skóla í Reykjavík eða í önnur sveitarfélög.

Á skólaárinu sjálfu, það er frá hausti 2010 til vors 2011, flutti 201 nemandi úr landi en 1.142 nemendur fluttu milli skóla í Reykjavík eða í önnur sveitarfélög.

Spá um fjölda nemenda fyrir hvern skóla stóðst mjög vel þetta haust sem gefur vísbendingu um að flutningar milli hverfa í Reykjavík hafi ekki verið frábrugðnir fyrri árum, samkvæmt upplýsingum frá menntasviði Reykjavíkur.- ibs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×