Innlent

Tugir stórfyrirtækja hafa flúið krónuna

Upplýsti á þingi að 37 af 300 stærstu fyrirtækjum landsins gerðu reikninga sína upp í erlendri mynt.fréttablaðið/stefán
Upplýsti á þingi að 37 af 300 stærstu fyrirtækjum landsins gerðu reikninga sína upp í erlendri mynt.fréttablaðið/stefán
Af 300 stærstu fyrirtækjum landsins gera 37 upp í erlendri mynt. Þetta kemur fram í tölum sem Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, lét taka saman fyrir sig. Samanlögð velta fyrirtækjanna frá þeim tíma sem þau hófu að gera upp í erlendri mynt nemur 1.635 milljörðum króna.

Af þessum fyrirtækjum eru ellefu sjávarútvegsfyrirtæki, sem samanlagt eiga um 42 prósent af aflamarki.

Magnús Orri segir það umhugsunarefni að á sama tíma og sjávarútvegsfyrirtækin njóti kostanna við uppgjör í erlendri mynt berjist samtök þeirra, Landssamband íslenskra útvegsmanna, með kjafti og klóm gegn því að almenningur fái notið sömu kjara. „Útgerðarmennirnir gera upp í evrum og njóta þannig lægri vaxta og minni sveiflna en standa svo í baráttunni gegn því að starfsmenn þeirra, fiskvinnslufólk og sjómenn, fái sömu kjör.“

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í gær að ljóst væri að evran væri komin inn bakdyramegin sem annar gjaldmiðill þjóðarinnar.

„Það er ljóst að stór og vel rekin fyrirtæki telja hagsmunum sínum betur borgið við það að gera upp í öðrum gjaldmiðli en íslensku krónunni. Það þarf að skoða, það er nokkuð ljóst.“

Ragnheiður sagði það einnig umhugsunarefni hvernig gjaldeyrishöftin kæmu við fyrirtækin. Þau gætu leitt til þess að fyrirtæki með hátt hlutfall tekna í erlendri mynt færði höfuðstöðvar sínar úr landi.

Magnús Orri tekur undir þessar áhyggjur og segir það að fyrirtækin flýi krónuna auka líkur á því að þau flytji höfuðstöðvar sínar út. „Stóru verðmætu fyrirtækin okkar eiga þess kost að fara út úr krónunni og það hafa mörg þeirra gert. Almenningur hefur ekki sama valkost og situr eftir með háa vexti og óvissu í rekstri heimila.“kolbeinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×