Viðskipti innlent

Ætlar að passa upp á hagsmuni Íslands

Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar
finnbogi Jónsson
finnbogi Jónsson
fiskifingur á færibandi Starfsemi Icelandic Group erlendis er umsvifamikil. Fyrirtækið seldi frá sér reksturinn í Frakklandi og Þýskalandi í sumar og vinnur nú að því að losna við annan erlendan rekstur.
„Við vitum ekki á þessari stundu nákvæmlega hvaða fyrirtæki munu bjóða í rekstur Icelandic Group í Bandaríkjunum. Við vitum það á morgun [í dag],“ segir Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðsins. Lokafrestur til að skila inn tilboðum rann út á miðnætti að bandarískum tíma, það er klukkan fjögur liðna nótt.

Söluferlið á starfsemi Icelandic Group í Bandaríkjunum og tengdri starfsemi í Kína hófst í júlí. Bandaríski bankinn Bank of America Merrill Lynch sér um söluna. Þegar henni lýkur verður búið að selja nánast allar erlendar eignir Icelandic Group.

Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að sex erlend stórfyrirtæki hafi haft hug á að leggja fram tilboð í starfsemi Icelandic Group vestra. Tvö hafi líklega helst úr lestinni á síðustu metrunum. Þau fyrirtæki sem sýndu starfseminni áhuga eru kínverska sjávarútvegssamstæðan Pacific Andes, sem keypti starfsemi Icelandic Group í Frakklandi og Þýskalandi í júní eftir að slitnaði upp úr viðræðum við norræna sjóðinn Triton. Kanadíska fisksölufyrirtækið High Liner Foods er sömuleiðis í kapphlaupinu um reksturinn. Fyrirtækið bauð í byrjun árs 340 milljónir evra, jafnvirði 52,4 milljarða milljarða króna í allar eignir Icelandic Group utan Íslands. Tilboðinu var ekki tekið.

Í gögnum sem Fréttablaðið hefur undir höndum frá einum bjóðenda eru viðraðar áhyggjur af því að í kjölfar sölunnar lokist dyrnar fyrir íslenskan fisk ytra.

Finnbogi segir forsvarsmenn Framtakssjóðsins hafa skoðað málin ítarlega með það fyrir augum að tryggja markaðsaðgang fyrir íslenskan fisk í Bandaríkjunum undir vörumerkinu Icelandic. „Íslenskur fiskur er mjög eftirsóttur og það eru sem betur fer engin teikn á lofti um að það breytist. Þótt sala á íslenskum fiski til Bandaríkjanna hafi minnkað mikið á undanförnum árum verða Bandaríkin áfram mikilvægur markaður fyrir íslenskar fiskafurðir. Icelandic Group mun í samningum við væntanlegan kaupanda leggja mikla áherslu á að íslenskur fiskur hafi greiðan aðgang að þeim dreifileiðum sem Icelandic í Bandaríkjunum ræður yfir,“ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×