Viðskipti innlent

Nýtanleg orka líklega virkjuð næstu fimmtán til tuttugu ár

hörður arnarson
hörður arnarson
Síðasta stóra framkvæmdaskeiðið í virkjanagerð er að renna upp og því er sérstaklega mikilvægt að vel sé vandað til verka. Þetta segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, sem hélt erindi á formannafundi ASÍ í gær. Hörður segir líklegt að á næstu 15 til 20 árum verði nýtt meira eða minna allt vatnsafl og jarðvarmi sem nýtanlegur sé á landinu. Margir kostir séu, í Rammaáætlun um verndun og nýtingu náttúru, settir í verndarflokk.

„Það verður ekki svona stórt framkvæmdatímabil aftur. Það verður ekki hægt að fara í virkjanaframkvæmdir aftur til að knýja hagvöxt, þó að vissulega verði einhver smærri virkjanaverkefni,“ segir Hörður.

Alls eru framleiddar 17 teravattstundir af raforku á landinu í dag. Hörður segir að samkvæmt 15 ára áætlun verði virkjaðar 11 teravattstundir í viðbót, fáist til þess tilskilin leyfi. Gæta verði þó að því að hagkerfið ofhitni ekki, en þar sem um margar smærri framkvæmdir er að ræða er auðveldara að stýra því.

Væntanleg uppsöfnuð hagvaxtaráhrif af þessum framkvæmdum yrðu um 13 prósent, samkvæmt mati Landsvirkjunar. Er þar tekið til framkvæmda-, rekstrar- og arðsemisáhrifa. Áhrif framkvæmdanna eru tímabundin og Hörður bendir á að þær hafi jafnmikil neikvæð áhrif á hagkerfið þegar þeim ljúki og þær hafi jákvæð þegar þær hefjist.

Mikilvægast sé að tryggja að arðsemisáhrif séu sem mest og það sé fyrst og fremst gert í gegnum verð. Aðgengi að fjármagni muni algjörlega ráðast af viðeigandi raforkuverði. Ekkert raforkufyrirtæki muni fjármagna sig á því verði sem tíðkast hafi hér áður fyrr.

Gert er ráð fyrir að 9 til 11 þúsund störf gætu skapast af framkvæmdunum. Hörður segir hins vegar að um sérhæfð störf sé að ræða og það gæti orðið hamlandi við ráðningar. Þess vegna verði að auka starfsgetu þeirra sem séu á atvinnuleysisskrá.- kóp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×