Innlent

Prestar vilja láta endurskoða starfsemi þjóðkirkjunnar

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir
Prestar þjóðkirkjunnar Um helmingur presta telur upplýsingagjöf um fjármál kirkjunnar ábótavant.fréttablaðið/stefán
Þrír af hverjum fjórum prestum í landinu telja þörf á að einfalda skipulag þjóðkirkjunnar. Fram hafa komið álit um að lög og starfsreglur kirkjunnar séu ógagnsæ, stjórnsýsla ekki viðunandi og endurskoða þurfi allt stjórnkerfi hennar og skipulag. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um Biskupsstofu.

Ríkisendurskoðun gerði rafræna könnun meðal þjónandi presta um viðhorf þeirra til starfsemi Biskupsstofu og fleiri málefna í apríl síðastliðnum. Alls var 134 prestum send könnunin og af þeim svöruðu 115 eða 85,8 prósent. Könnunin innihélt 18 spurningar, þar af ein opna þar sem fólki var gefinn kostur á að koma athugasemdum á framfæri. Meðal þess sem þar kom fram var að þær ákvarðanir hjá þjóðkirkjunni væru handahófskenndar og að samþykktum kirkjuþings væri ekki fylgt eftir.

Jafnframt kom fram sú skoðun að leysa þyrfti biskup undan daglegum rekstri svo hann gæti sinnt betur trúarlegum viðfangsefnum, en meirihluti presta taldi handleiðslu biskups ábótavant. Leiða má líkum að því að umfangsmikil störf biskups á sviði rekstrar komi í veg fyrir nægileg samskipti við presta, segir í skýrslu Ríkisendurskoðunar.

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir hjá Biskupsstofu segir faghandleiðslu fyrir presta vera í boði á vegum fjölskylduþjónustu kirkjunnar.

Tæpur helmingur presta, eða 47 prósent, var mjög eða frekar ósammála þeirri fullyrðingu að hafa greiðan aðgang að upplýsingum um fjármál þjóðkirkjunnar. Var 31 prósent svarenda mjög eða frekar sammála fullyrðingunni.

Steinunn Arnþrúður segir öll fjármál fara til endurskoðunar hjá ríkinu og úthlutanir úr sjóðum koma alltaf fram á vefnum. „Yfirlit yfir fjármál er líka lagt fram fyrir kirkjuþing, en það er sjálfsagt að skoða þetta," segir hún.

Enn fremur voru prestarnir beðnir að taka afstöðu til eftirfarandi fullyrðingar: „Ég fæ þær upplýsingar frá biskupi og starfsmönnum á Biskupsstofu sem ég þarf á að halda til að geta sinnt starfi mínu vel." Voru 42 prósent svarenda mjög eða frekar sammála fullyrðingunni en 37 prósent mjög eða frekar ósammála. Í opnu spurningunni kom fram gagnrýni á að formlegum, skriflegum erindum væri ekki svarað frá Biskupsstofu eða þeim svarað seint og um síðir og athugasemdum úr héraði væri ekki sinnt.sunna@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×