Grikkir kynna nýjan forsætisráðherra í dag 8. nóvember 2011 01:00 stíft fundað Georg Papandreú forsætisráðherra og Antonis Samaras, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, hafa fundað stíft í forsetahöllinni í Aþenu ásamt Karolos Papúlías forseta síðustu daga.Fréttablaðið/AP
Tilkynnt verður um nýjan forsætisráðherra Grikklands í dag. Samkvæmt grískum fjölmiðlum komust Georg Papandreú, fráfarandi forsætisráðherra og leiðtogi vinstri flokksins Pasok, og Antonis Samaras, leiðtogi hægri flokksins Nýtt lýðræði, að samkomulagi um forsætisráðherra í samsteypustjórn flokkanna í gærkvöldi. Talið er líklegast að Lúkas Papademos, fyrrverandi aðstoðarbankastjóri Seðlabanka Evrópu, sem á sínum tíma hafði umsjón með upptöku evrunnar í Grikklandi, hafi orðið fyrir valinu. Einnig þóttu þó koma til greina hægrimaðurinn Stavros Dimas, fyrrverandi umhverfisstjóri í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, og Evangelos Venizelos, fjármálaráðherra í stjórn Papandreús. Papandreú og Samaras ræddust lengi við á símafundi í gær, daginn eftir að þeir náðu samkomulagi um að stjórnarsamstarf. Nýja þjóðstjórnin verður bráðabirgðastjórn. Efnt verður til þingkosninga þann 19. febrúar, en þangað til fær stjórnin það verkefni að tryggja samkomulag á þingi um björgunarpakka Evrópusambandsins og þær aðhaldsaðgerðir innanlands sem honum tilheyra. Víða má þó enn heyra efasemdir um að stjórninni muni takast að hrinda aðhaldsaðgerðunum í framkvæmd, en í staðinn ætla stærstu bankar Evrópu að fella niður helminginn af skuldum gríska ríkisins, auk þess sem bein fjárhagsaðstoð frá ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verður stóraukin. Almenningur er orðinn langþreyttur á aðhaldsaðgerðum, sem bitnað hafa illa á fólki í nærri tvö ár. Mótmæli almennings gegn þeim gætu orðið enn harðari nú þegar hægriflokkurinn er kominn til liðs við stjórnina, sami flokkur og safnaði þeim skuldum sem ríkið ræður ekki lengur við að greiða afborganir af. Samaras og flokkur hans gætu sömuleiðis reynt að ná því fram í stjórnarsamstarfinu að dregið verði úr þessum aðhaldsaðgerðum, í samræmi við stanslausa gagnrýni flokksins á Papandreú mánuðum saman. Í staðinn gæti svo farið að aðstoð ESB og AGS verði í uppnámi, og þar með stæði Grikkland ansi tæpt á evrusvæðinu. gudsteinn@frettabladid.is
Fréttir Mest lesið Vænta þess að eigendur hússins leysi málið Viðskipti innlent Milla ráðin rekstrarstjóri hjá Ólafi Darra og félögum Viðskipti innlent „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ Atvinnulíf Leggja til lagabreytingu sem leysir af penna og pappír Viðskipti innlent Um fimmtíu verið sektuð fyrir að greiða ekki rétt fargjald Neytendur Fólk muni eiga meira eftir í buddunni um mánaðamótin Neytendur „Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt“ Atvinnulíf Fékk milljón til baka vegna bílaleigubíls sem varð fyrir eldingu Neytendur 37,5 milljarðar í hagnað og nítján í arð Viðskipti innlent Kolefnisförgunarstöð geti skapað Ölfusi störf og tekjur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreind fyrir klink veldur Bandaríkjamönnum hausverk Kínversk kúvending leiddi til hruns vestanhafs Enn deila Musk og Altman MrBeast gerir tilboð í TikTok Eftirmaður Norman yfir LIV-mótaröðinni fundinn Höfða mál gegn Musk vegna kaupanna á Twitter Vilja banna farþegum að fá sér þriðja drykkinn á flugvellinum Meta birtir óumbeðnar gervigreindarmyndir af notendum Instagram Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Sjá meira