Viðskipti innlent

Auður Capital kaupir Tinda

Vilhjálmur Þorsteinsson
Vilhjálmur Þorsteinsson
Fjármálafyrirtækið Auður Capital hefur yfirtekið Tinda verðbréf. Verður starfsemi fyrirtækjanna sameinuð undir merkjum Auðar Capital.

Í tilkynningu frá Auði Capital segir að með kaupunum muni verðbréfamiðlun bætast við núverandi þjónustuframboð fyrirtækisins. Þá styrkist fyrirtækjaráðgjafarþjónusta þess.

Samhliða kaupunum mun Vilhjálmur Þorsteinsson taka við af Höllu Tómasdóttur sem stjórnarformaður Auðar Capital. Halla hefur verið stjórnarformaður frá stofnun en hún mun áfram sinna fjárfestingartengdum verkefnum og sitja í stjórnum fyrir hönd félagsins. - mþl






Fleiri fréttir

Sjá meira


×