Athugasemd til Hannesar Hólmsteins Þorsteinn frá Hamri skrifar 22. nóvember 2011 09:30 Ég minnist þess frá yngri árum að menn voru stundum að yrkja grín og glens, hver við annan og hver um annan, gerðu sér gaman af og voru ekkert að erfa það í sinn hóp. Ætíð hafa þó verið til menn sem snerust öndverðir við svo alþýðlegri gamansemi og nýttu hana til heiftar og rangtúlkana ef þeim bauð svo við að horfa. Af þessum toga var spunninn einkar ómerkilegur hálfkæringskveðskapur í gömlum stíl, sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson gerir að heimspólitísku umfjöllunarefni í nýrri kommúnistabók sinni og kynnir ýmist sem háðkvæði eða skopkvæði, er ég hafi sem sérlegur „ráðstjórnarvinur" sett saman til niðrunar Jóni Óskari skáldi. Ekki man ég lengur hvernig eða í hverskonar gantaskap umræddar bögur mínar rötuðu á síður Þjóðviljans 1964, en tek fúslega fram að í þetta sinn leyndist raunar ákveðin alvara að baki skensinu. Okkur strákum og stelpum, sem af misgóðum efnum vorum þá að myndast við að láta sem bókleg iðja kæmi okkur við, þótti ætíð nóg um hve oft og lengi úthlutunarnefnd listamannalauna lét sér sæma að vanmeta og sniðganga góðskáldið Jón Óskar, sem þá bjó oft við þröngan hag; af nefndarinnar hálfu naut hann smánarlauna, lítilla eða engra - unz skyndilega skipti um, þegar út kom frá hans hendi gagnrýn og vafalaust makleg meðhöndlun á Sovét, sem að þeirrar tíðar hætti gat virzt brúkleg í hanaslag kalda stríðsins. Miðað við listatök þessa ágæta ljóðskálds þótti okkur viðbrögð nefndarinnar afhjúpa fremur lágkúrulegt verðleikamat. Þessi var ályktun mín og margra annarra í þá daga, og menn geta ýmislega velt því fyrir sér, með hliðsjón af ríkjandi aldarfari, hvað kunni að hafa verið hæft í henni. Svo mikið er víst að samsetningur minn var ekki „háðkvæði um Jón Óskar". Skeytunum, svo óbjörguleg sem þau annars voru, var umfram allt beint að úthlutunarnefnd listamannalauna, sem sjaldnast naut friðsældar um þær mundir fremur en endranær. Þetta skynjuðu og skildu flestir sem töldust vera þokkalega læsir; og örugglega allir sem einhvern tíma höfðu kynnt sér gaman og alvöru í kveðskap af þessu tagi, þar sem saman fara stundum bjagað rím, hæpnar áherzlur, kringilyrði, ýkjur og staðnað orðaprjál, oft úr sálmum: „Hér máttu, sál mín, sanna" og því um líkt. Langt er um liðið, og með naumindum að maður kannist við sjálfan sig í slíku þófi og þrefi, sem kannski er fyrst og fremst talandi vitni um hraklega aðbúð rithöfunda á þessum árum. En alla tíð, bæði fyrr og síðar en þetta var, fór vel á með okkur Jóni Óskari, við áttum saman notalegar stundir, kynni mín af honum voru frjó og fræðandi, okkar á milli ríkti hlýja og velvild. Ég mótmæli því harðlega að umrætt vísnaklastur sé dregið fram sem falsvitni um skipti mín við þann vammlausa og góða dreng. Ég hef ekkert unnið til þess að nefndur prófessor við Háskóla Íslands geri mér upp kala í garð einstakra samferðamanna minna, lífs eða liðinna. Prófessorinn Hannes Hólmsteinn skrifar talsvert og les líka heilmikið. Það er fallegt. Að lesa og skrifa list er góð. En ákjósanleg er einnig sú list að hreinsa skólp pólitískrar áráttuhegðunar út úr hausnum á sér þegar farið er hug og höndum um verk eftir aðra, jafnvel þótt um sé að ræða hartnær hálfrar aldar gamlan leirburð eftir mig. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Mengum meira Heiðar Guðjónsson Skoðun Sigmundi Davíð svarað Björn Bjarnason Skoðun Ferðatryggingar og val á kreditkorti Svandís Edda Hólm Jónudóttir Skoðun Hvað verður um Kára? Helga Sigrún Harðardóttir Skoðun Coda Terminal hefur ekki áhrif á neysluvatnsból höfuðborgarsvæðisins Sigrún Tómasdóttir Skoðun Af hverju leka gluggar fyrr en áður? Böðvar Bjarnason Skoðun Halldór 05.07.2024 Halldór Að óttast blokkir Ásta Logadóttir Skoðun Bestun Seðlabankastjóra Karl Guðlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Sigmundi Davíð svarað Björn Bjarnason skrifar Skoðun Coda Terminal hefur ekki áhrif á neysluvatnsból höfuðborgarsvæðisins Sigrún Tómasdóttir skrifar Skoðun Líf og dauði leikur á hnífsegg Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Mengum meira Heiðar Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað verður um Kára? Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Að eiga tertuna og borða hana líka – svar til formanns Hildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Hik er sama og tap Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Af hverju leka gluggar fyrr en áður? Böðvar Bjarnason skrifar Skoðun Hluta þjóðarinnar hent út í kuldann – hinn baðar sig í sólinni Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Að óttast blokkir Ásta Logadóttir skrifar Skoðun Engin gúrka hjá Blaðamannafélaginu Sigríður Dögg Auðunsdóttir,Freyja Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Stórnotendur eru kjölfestan í íslenska raforkukerfinu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Ert þú í góðu netsambandi? Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Evrópa og myrkrið framundan Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Heilræði fyrir Nýhaldið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Skoðun Glútenlaust gull á grillið Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Kaupin á eyrinni Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lokunaruppboð í Kauphöllinni Baldur Thorlacius skrifar Skoðun Viðreisn mun leggja fram tillögu um íbúakosningu um Coda Terminal verkefnið í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Ferðatryggingar og val á kreditkorti Svandís Edda Hólm Jónudóttir skrifar Skoðun Af hverju að byggja Coda Terminal? Ólafur Elínarson,Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Hljóð úr horni Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun ESB fyrir almenning Oddný G. Harðardóttir skrifar Skoðun Strámaðurinn mikli Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Árið er 2024 Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Samkeppni í nýju ljósi Páll Hermannsson skrifar Skoðun Það er verið að grafa dýpri fátæktargjá Rúnar Sigurjónsson skrifar Skoðun „Hæ ástin, þarf að millifæra, getur þú samþykkt beiðnina?“ Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Algeng þvæla um Evrópusambandið Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Stundum hefur Gunnar Smári rétt fyrir sér Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Coda Terminal hefur ekki áhrif á neysluvatnsból höfuðborgarsvæðisins Sigrún Tómasdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn mun leggja fram tillögu um íbúakosningu um Coda Terminal verkefnið í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun