Tíska og hönnun

Fyrirsætunnar Loulou de la Falaise minnst

Falaise og fatahönnuðurinn Yves Saint Laurent voru vinir alla ævi. Hér sjást þau saman árið 1990.
Falaise og fatahönnuðurinn Yves Saint Laurent voru vinir alla ævi. Hér sjást þau saman árið 1990. Nordicphotos/Getty
Tískuíkonið Loulou de la Falaise lést í byrjun mánaðarins aðeins 63 ára að aldri. Falaise var músa, samstarfskona og ein besta vinkona hönnuðarins Yves Saint Laurent, sem hannaði Le Smoking-kvenjakkafötin fyrir áhrif frá henni.

Falaise var dóttir bresku fyrirsætunnar Maxime de la Falaise og fransks hefðarmanns og starfaði sjálf sem fyrirsæta um hríð og sat meðal annars fyrir í bandaríska Vogue. Hún hannaði lengi skartgripi fyrir tískuhúsið YSL en eftir að vinur hennar, Yves Saint Laurent, settist í helgan stein kom Falaise á laggirnar eigin fylgihlutalínu sem vakti mikla athygli meðal tískuunnenda.

Tímaritið Women's Wear Daily segir frá því að Falaise hafi greinst með krabbamein í júlí í fyrra en haldið fréttunum frá fjölmiðlum. Fréttir af andláti hennar komu því mörgum á óvart enda virtist Falaise hraust og heilbrigð. Falaise lætur eftir sig eina dóttur, Önnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.