Innlent

Lilja Móses: Flokkurinn ekki í fyrsta sæti

Lilja Mósesdóttir.
Lilja Mósesdóttir.
Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segist vera ánægð með fengið góða kosningu í annað sætið í vali á manni ársins á Rás 2 í gær. Hún segist á Facebook síðu sinni líta á kosninguna sem stuðning við þingmenn sem líta ekki á stefnumál sem skiptimynt og setja fólk í fyrsta sæti en ekki flokkinn.

Í síðustu viku sagðist Lilja íhuga að yfirgefa þingflokk VG. Hún furðaði sig á viðbrögðum flokksforystunnar við hjásetu hennar, Atla Gíslasonar og Ásmundar Einars Daðasonar. Lilja sagðist ennfremur ætla að leggjast undir feld fram yfir áramót. Boðað hefur verið til þingflokksfundar 5. janúar þar sem mál þremenninganna verða rædd.

Fari svo að þremenningarnir segi sig úr þingflokknum mun ríkisstjórnin njóta stuðnings 32 þingmanna sem er minnsti mögulegi meirihluti á Alþingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×