Bæjarfulltrúar biðja Ísfirðinga afsökunar 8. janúar 2011 07:00 Skarphéðinn Jónsson í Efri-Engidal Funamálið hófst með díoxínmælingu MS í mjólk frá Efri-Engidal. Nú er mælt með að allir á svæðinu fari í læknisskoðun vegna hugsanlegs heilsutjóns.mynd/halldór Sveinbjörnsson
Umhverfisnefnd Alþingis hefur falið Ólínu Þorvarðardóttur alþingismanni að hafa umsjón með endurskoðun löggjafar um upplýsinga- og viðbragðsskyldu stjórnvalda til að kanna hvaða þátt veilur í lögum kunni að hafa haft í Funamálinu. Bæjarfulltrúar, bæði í meiri- og minnihluta, báðu íbúa afsökunar á andvaraleysi sínu á fundi bæjarstjórnar á miðvikudag. Umhverfisnefnd fjallaði um Funamálið í gærmorgun að frumkvæði Ólínu en henni innan handar við endurskoðun laganna verða nefndarritari umhverfisnefndar ásamt öðrum lögfræðingum þingsins. Í fréttatilkynningu nefndarformanns, Marðar Árnasonar, segir að fara eigi yfir löggjöfina „og athuga hvaða þátt veilur í lögum kunna að eiga í þeim mistökum sem nú eru augljós". Ólína hyggst skila áliti á nefndarfundi fyrir lok janúarmánaðar. Ólína segir fundinn hafa verið góðan í alla staði og mikið af upplýsingum hafi komið fram. Þá hafi rangfærslur verið leiðréttar. „Nefndin tekur þetta mál mjög alvarlega. Niðurstaða fundarins er sú að fara yfir þá lagabálka sem eiga við um upplýsingaskyldu stjórnvalda gagnvart mengun og umhverfisáhrifum. Eins lög sem gilda um starfsleyfi fyrirtækja, hollustuhætti og aðbúnað og heilsuvernd almennings." Ólína segir að allt stefni í að umhverfisnefnd geri sjálf tillögur um lagabreytingar. Málefni Funa voru til umræðu á fundi bæjarstjórnar Ísafjarðar á miðvikudag. Bæjarfulltrúar Í-listans lögðu fram bókun þar sem lýst er „þungum áhyggjum af þeirri mengun sem sýnt er að komið hefur frá sorpbrennslunni Funa á undanförnum árum. Sérstaklega séu upplýsingar um díoxínmengun í útblæstri Funa og í mjólkurafurðum frá Engidal áfall fyrir íbúa Skutulsfjarðar og trúnaðarmenn almennings í sveitarfélaginu. Í-listinn leggur til að Ísafjarðarbær óski eftir því við heilbrigðisyfirvöld að þau láti nú þegar fara fram rannsókn á heilsufari allra starfsmanna Funa og íbúa í innsta hluta Skutulsfjarðar." Gísli H. Halldórsson, forseti bæjarstjórnar, lagði fram bókun meirihluta bæjarstjórnar. Þar harmar meirihlutinn þá stöðu sem upp er komin. Gísli sagði á fundinum að honum hefði ekki verið kunnugt um mengunina. „Ég get tekið undir með bæjarfulltrúum Í-listans að ef mér hefði verið ljós alvarleiki þessa máls hefði ég gripið það fegins hendi að loka stöðinni strax." svavar@frettabladid.is
Mest lesið „Mér að mæta“ ef krossar yrðu fjarlægðir Innlent Hlé vegna gagna frá ChatGPT Innlent Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Innlent Sérsveitin kölluð til í Urriðaholti Innlent Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum Innlent Segir verkfræðinga á villigötum Innlent Þriggja daga heitavatnsleysi í næstu viku Innlent Trump gerði lítið úr æðstu heiðursorðu bandarískra hermanna Erlent „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Innlent Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Íbúafundur um uppbyggingu sem ógni flúðunum skilyrði Leita ökumanns sem ók á stúlku og stakk af Meiri tíðindi að stjórnin hafi lifað svo lengi Pottur á eldavél talinn upptök brunans á Amtmannsstíg Láglaunakonur heilsuveilli en konur með hærri laun Krefst að lágmarki sex og hálfs árs fangelsis yfir Pétri Jökli Ójöfnuður meðal kvenna og ríkisstjórnin gagnrýnd Gagnrýnir tvískinnung borgaryfirvalda með orlofsgreiðslur Dags Þriggja daga heitavatnsleysi í næstu viku Tæknileg vandræði hjá Háskóla Íslands Hlé vegna gagna frá ChatGPT Sérsveitin kölluð til í Urriðaholti „Mér að mæta“ ef krossar yrðu fjarlægðir Segir verkfræðinga á villigötum Landsvirkjun gerir 725 milljón króna tilboð í Toppstöðina Skjálfti í Bárðarbunguöskjunni Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Sjá meira