Innlent

Sleginn með glerflösku í höfuðið

Fangageymslur á Lögreglustöðinni við Hverfisgötu fullar eftir nóttina. Er það vegna ýmissa mála, líkamsárása, ölvunaraksturs, þjófnaða og svo aðstoð við borgarana vegna ölvunar. Nokkuð var um minniháttar pústra og slagsmál í miðbænum, hávaðaútköll og ágreininga.

Einn var sleginn í höfuðið með glerflösku fyrir utan 10-11 í Austurstræti í nótt sem orsakaði talsverða blæðingu. Tveir voru handteknir vegna málsins og sá slasaði fluttir á slysadeild í sjúkrabifreið.

Tveir ökumenn voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og aðrir tveir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Allt voru þetta karlmenn, 20-35 ára. Einn til viðbótar var tekinn réttindalaus við akstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×