Erlent

Sármóðgaður Sígaunakóngur

Óli Tynes skrifar
Alex Karoli: -Við rænum ekki fólk.
Alex Karoli: -Við rænum ekki fólk.
Alex Karoli er kallaður Sígaunakóngurinn í Noregi. Hann og níu synir hans og aðrir fjölskyldumeðlimir eru vel þekktir í réttarkerfinu þar í landi. Og Karoli var sármóðgaður þegar hann kom fyrir dómstól í Osló til þess að bera blak af ættingja sem hafði verið handtekinn fyrir vopnað rán.

Hans hátign  taldi víst að ættinginn væri saklaus af ákærunni. Rökin sem hann færði fram voru: -Við svindlum á fólki, við rænum það ekki. Þessi skýring dugði þó ekki dómaranum Line Solhaug. Hún úrskurðaði ættingjann í gæsluvarðhald til áttunda júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×