Erlent

Natalie Portman eignaðist strák

Natalie Portman og unnusti hennar Benjamin Millepied
Natalie Portman og unnusti hennar Benjamin Millepied
Óskarsverðlaunahafinn og leikkonan Natalie Portman og unnusti hennar Benjamin Millepied eignuðust sitt fyrsta barn í morgun.

Fallegur og heilbrigður drengur kom í heiminn. Skötuhjúin kynntust við gerð myndarinnar Black Swan en Portman var valin besta leikkona í aðalhlutverki á Óskarnum fyrir hlutverk sitt í myndinni.

Í desember síðastliðnum tilkynntu Millepied og Portman um trúlofun sína og að hún bæri barn undir belti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×