Erlent

Obama búinn að fá nóg

Óli Tynes skrifar
Obama er á stundum hundþreyttur á starfinu.
Obama er á stundum hundþreyttur á starfinu. MYND/AP
Barack Obama segist upplifa daga þar sem honum þyki eitt kjörtímabil sem forseti vera alveg nóg. Hann segir að fjölskyldan myndi ekki syrgja það að hann byði sig ekki fram í næstu kosningum. Forsetinn  lét þessi orð falla í viðtali við NBC sjónvarpsstöðina þar sem hann meðal annars svaraði ásökunum um að hann væri tilfinningalega fjarrænn í starfi sínu.

Sagt hefur verið að hann sýni engin viðbrögð á útifundum þar sem fólk gráti heimilismissi vegna kreppunnar. Hann segist þvert á móti taka það mjög nærri sér. Undir þetta tekur Michelle eiginkona hans sem segist sjá andlit hans verða rúnum rist af sorg og áhyggjum yfir þeim sem eigi um sárt að binda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×