Erlent

Hætt við að giftast Hugh Hefner

Hugh Hefner og Crystal Harris. Playboy-kóngurinn er nú einhleypur.
Hugh Hefner og Crystal Harris. Playboy-kóngurinn er nú einhleypur. Mynd/AFP
Hugh Hefner, stofnandi Playboy tímaritsins, mun ekki ganga að eiga Crystal Harris um helgina líkt og stóð til. Playboy-kóngurinn greinir frá þessu á Twitter síðu sinni. Harris sem er 25 ára og 60 árum yngri en Hefner virðist hafa snúist hugur eftir rifrildi þeirra.

Brúðkaupið átti að fara fram á laugardaginn og von var á rúmlega 300 brúðkaupsgestum á Playboy-setrið. Hefner hefur tvívegis áður verið giftur. Fyrra hjónaband hans endaði árið 1959 og hið síðara 2009.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×