Brasilíufangi: Ég vil enga vorkunn 15. júní 2011 10:30 Karl Magnús þótti ákaflega liðtækur handboltamaður og lék um tíma með bæði meistaraflokki Víkings og Gróttu. Hann mætti í gærkvöldi á sína fyrstu meistaraflokksæfingu hjá Gróttu. Mynd/Haraldur „
Ég ætla bara byrja líf mitt upp á nýtt og stefni ótrauður á nám. Nú er þessi tími að baki og ég ætla bara að horfa fram á veginn," segir Karl Magnús Grönvold. Þrjár vikur eru liðnar síðan Karl Magnús sneri aftur heim til Íslands eftir erfið fjögur ár í Brasilíu. Eins og Karl greindi frá í bókinni Brasilíufanginn eftir Jóhannes Kr. Kristjánsson sem kom út í fyrra sat hann inni í tæp fjögur ár í rammgerðu fangelsi í Sao Paulo fyrir kókaínsmygl. Karl var gripinn með sex kíló af eiturefninu og þurfti að dúsa á bak við lás og slá meðal glæpamanna frá 74 löndum. Karl losnaði úr fangelsinu í febrúar á síðasta ári en varð engu að síður að halda skilorð í heilt ár, mátti ekki yfirgefa Brasilíu né fá sér vinnu. Hann eyddi því tímanum í að útvega sér ígripastörf, meðal annars við smíðar og að setja upp hljóðkerfi á bar. En nú er hann loksins kominn heim, heim til móður sinar sem studdi hann með ráðum og dáð öll árin. „Hún er búin að vera mamma ársins í fjögur ár!" Karl var á leiðinni með strætó frá Hveragerði til Reykjavíkur þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Hann er nýkominn úr meðferð þar sem fólkið inni á Vogi las bókina um dvöl hans í Brasilíu. „Það var þarna strákur sem var lesblindur og hafði varla opnað bók frá því í 7. bekk en lét bókina ekki frá sér," segir Karl, sem gerir sér vonir um að geta unnið við forvarnastarf í framtíðinni, bókin hafi verið fyrsta skrefið á þeirri vegferð. Hún verði vonandi öðrum víti til varnaðar. „Það gefur auga leið að þetta er reynsla sem ég óska engum að upplifa." Karl hugðist mæta á æfingu hjá meistaraflokki Gróttu í handbolta í gærkvöldi og hafði fengið grænt ljós hjá íþróttastjóra félagsins. Hann lék með félaginu í eitt ár áður en lífið tók kollsteypu. „Ég var mjög feginn að hafa loksins fengið jákvæð viðbrögð," segir Karl sem gerir sér fyllilega grein fyrir aðstæðum sínum, það verði til að mynda ekki hlaupið að því að fá vinnu miðað við orðspor hans sem sé í molum. „Maður verður samt bara að halda áfram og ég vil enga vorkunn. Ég ætla mér að vinna fyrir öllu mínu." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Innlent „Skrýtinn“ höggstaður á Trump sem snýr sér að kynþætti Harris Erlent Ósáttir við að vera vísað frá Rússlandi gegn vilja sínum Erlent Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Bíll alelda á Hellisheiði Innlent Fimm í fangaklefa þegar mest lét í Eyjum Innlent Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Innlent Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Innlent Fleiri fréttir Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Hnífstunguárás á Akureyri og vandræði hjá Sjálfstæðisflokknum Fimm í fangaklefa þegar mest lét í Eyjum Ekki talinn í lífshættu eftir hnífsstungu á Akureyri í nótt Mátti litlu muna að eldur í gámi bærist í hús Íslendingar öllu veðri vanir Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni Kjósendur VG leiti nú til Sósíalista Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús Sló bíl með golfkylfu eftir átök milli fíkniefnasala og kaupanda Íslendingur vann tæpar 37 milljónir í Eurojackpot „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Sósíalistar sem ætla á þing og þjóðhátíð í beinni „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Vara við væntanlegum fjölda netsvika um helgina Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Eitthundrað ár frá fyrsta flugi til Íslands Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Sjá meira