Erlent

Þykir kúl að Arnold Schwarzenegger sé pabbi sinn

Mynd/Cover Media
Húshjálpin sem eignaðist barn með Arnold Schwarzenegger hefur rofið þögnina. Hún vill að Schwarzenegger taki aftur saman við við Mariu Shriver.

Líkt og kunnugt er tilkynntu Arnold Schwarzenegger og Maria Shriver í síðasta mánuði um skilnað þeirra eftir 25 ára hjónaband. Skömmu síðar kom í ljós að leikarinn og fyrrverandi ríkisstjórinn hefði eignast barn utan hjónabands með Mildred Baena, húshjálp þeirra til 20 ára.

Baena hefur verið í felum eftir að málið varð opinbert og hún hefur ekki viljað tjá sig við fjölmiðla, en það hefur hún nú gert. Baena segir að Shriver hafi krafið hana um svör og spurt hreint út hvort Schwarzenegger væri faðir drengsins sem er á 14. aldursári. Hún hafi sagt yfirmanni sínum satt og rétt frá. Húshjálpin segir að Shriver hafi borið sig vel þrátt fyrir tíðindin. Hún vill að Schwarzenegger og Shriver taki aftur saman.

Það var fyrir um ári sem Baena sagði syni sínum hver væri faðir hans. Viðbrögð drengsins voru á þá leið að honum þætti kúl eða mjög flott að Arnold Schwarzenegger væri pabbi hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×