Innlent

Sigmundur hlaut rússneska kosningu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ásamt Birki J. Jónssyni.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ásamt Birki J. Jónssyni.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hlaut rússneska kosningu á flokksþingi Framsóknarflokksins í dag. Hann var endurkjörinn með 92% atkvæða. Sigmundur Davíð var sá eini sem hafði lýst yfir áhuga á embætti formannsins, en allir flokksmenn eru í framboði.

Sigmundur fékk 355 atkvæði, Guðmundur Steingrímsson fékk sjö atkvæði, Siv Friðleifsdóttir sex atkvæði og aðrir fimm fengu eitt til tvö atkvæði.

Nú stendur yfir kjör varaformanns, en Sturla Jónsson, best þekktur sem flutningabílstjóri, lýsti yfir áhuga á embættinu á flokksþinginu. Það hefur núverandi varaformaður, Birkir J. Jónsson, einnig gert




Fleiri fréttir

Sjá meira


×