Innlent

Birkir endurkjörinn varaformaður

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Frá flokksþinginu í morgun.
Frá flokksþinginu í morgun.
Birkir Jón Jónsson var endurkjörinn varaformaður Framsóknarflokksins á flokksþingi í dag með 77,3% atkvæða. Sturla Jónsson, flutningabílstjóri, hafði lýst yfir framboði í varaformannskjörinu en hlaut 6 atkvæði. Birkir J. hlaut 303 atkvæði. Alls fengu þrettán manns atkvæði í varaformannskjörinu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafði áður verið endurkjörinn formaður flokksins, en hann hlaut rússneska kosningu eða um 92% atkvæða.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×