Borgarafundir haldnir vegna díoxínmengunar 9. febrúar 2011 16:40 Funi.
Umhverfisstofnun hefur lagt fram áætlun um mælingar á díoxín í jarðvegi í nágrenni mögulegra uppsprettna hérlendis. Rætt hefur verið við fagaðila til að annast mælingarnar en lögð er áhersla á að þær verði gerðar sem fyrst. Á samráðsfundi Matvælastofnunar, Sóttvarnarlæknis og Umhverfisstofnunar var ákveðið að haldnir yrðu borgarafundir í nágrenni við eldri sorpbrennslur á Ísafirði, Kirkjubæjarklaustri og í Vestamannaeyjum þar sem fulltrúar Matvælastofnunar, Sóttvarnarlæknis og Umhverfisstofnunar fari yfir stöðu mála og næstu skref. Fundirnir verða auglýstir á næstunni en fyrsti fundur er á Kirkjubæjarklaustri á morgun (10. febrúar) kl. 18 og verður haldinn í félagsheimilinu Kirkjuhvoli. Mælingar Matvælastofnunar á búfjárafaurðum leiddu í ljós að sýni mældust yfir mörkum fyrir díoxín í Skutulsfirði en ekki á Svínafelli þar sem starfrækt er eldri sorpbrennsla. Niðurstöður úr díoxínmælingum á mjólkursýnum úr nærliggjandi fjörðum, Álftafirði, Önundarfirði og Súgandafirði eru í lagi og það bendir eindregið til þess að um staðbundna díoxínmengun er að ræða. Umhverfisstofnun hefur lagt mat á hverjar séu helstu hugsanlegu uppsprettur díoxíns á Íslandi en ekki eru til sértækar mælingar á díoxín í umhverfinu. Matið er byggt annars vegar á mælingum á útblæstri frá sorpbrennslum og hins vegar alþjóðlegum losunarstöðlum fyrir mengandi starfsemi og opnar brennslur (s.s. áramótabrennur). Mælingarnar eru gerðar til þess að fá upplýsingar um mögulega uppsöfnun á díoxíni svo hægt sé að leggja mat á hugsanlega áhrif á lífríki og umhverfið. Stofnunin telur nauðsynlegt að staða mála hvað þetta varðar sé skýr og leggur því í viðamiklar mælingar á næstu vikum. Mælt verður á eftifarandi stöðum á landinu: Skutulsfirði: 1. Jarðvegssýni á lóð og í næsta nágrenni brennslunnar 2. Jarðvegssýni á jörðinni Engidalur inni í botni Skutulsfjarðar 3. Jarðvegssýni í Holtahverfi - þéttbýliskjarni næstur brennslunni 4. Sýni úr sjávarseti innst í Skutulsfirði 5. Jarðvegssýni frá Skarfaskeri/Hnífsdal - áhrifasvæði eldri sorpbrennslu Aðrar sorpbrennslur: 1. Jarðvegssýni úr næsta nágrenni brennslunnar á Kirkjubæjarklaustri 2. Jarðvegssýni úr næsta nágrenni brennslunnar í Vestmannaeyjum 3. Jarðvegssýni úr næsta nágrenni brennslunnar á Svínafelli 4. Jarðvegssýni úr næsta nágrenni brennslunar á Húsavík 5. Jarðvegssýni úr næsta nágrenni Kölku á Reykjanesi Önnur mengandi starfssemi þar sem díoxín getur myndast: 1. Jarðvegssýni úr Hvalfirði í nágrenni Norðuráls og Elkem 2. Jarðvegsýni úr nágrenni Alcoa í Reyðarfirði 3. Jarðvegssýni úr nágrenni Álvers Rio Tinto í Straumsvík 4. Jarðvegssýni úr nágrenni Sementsverksmiðjunnar 5. Jarðvegssýni úr nágrenni Als - álvinnslu 6. Jarðvegssýni þar sem áramótabrennur eru haldnar árlega Einnig verða tekin samanburðarsýni fjarri mengandi starfsemi.
Mest lesið Milla hætt hjá Willum Innlent Lést í eldsvoðanum við Amtmannsstíg Innlent „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Innlent Svipaður hlátur á öllum upptökunum Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg Innlent Gera sér ekki mat úr lekanum úr framboði Trump Erlent Hafa ekki í hyggju að halda Kúrsk Erlent Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Innlent Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Innlent Tugir þúsunda létust af völdum hita í Evrópu Erlent Fleiri fréttir Lést í eldsvoðanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Féll af hesti og var án meðvitundar Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Maðurinn í Taílandi sagður Íri ekki Íslendingur Stjórnvöld sofi á verðinum meðan Svens sæki í börnin Sjá meira