Tíska og hönnun

Litlir víkingar og vígalegar valkyrjur

Íslenskir víkingabúningar eftir Ríkey Kristjánsdóttur og Diljá Jónsdóttur.
Íslenskir víkingabúningar eftir Ríkey Kristjánsdóttur og Diljá Jónsdóttur.
Ný lína af íslenskum víkingabúningum frá hönnuðum barnafatalínunnar Húnihún er væntanleg á markaðinn um helgina.

Ríkey Kristjánsdóttir textílhönnuður og Diljá Jónsdóttir klæðskeri eru hönnuðir drengjafatalínunnar Húnihún í Kirsuberjatrénu. Núna hafa þær bætt við línuna víkingabúningum.

„Við erum að þrykkja á búningana víkingatákn og þeir eru bara að þorna," segir Ríkey. „Þeir verða komnir í Kirsuberjatréð um helgina."

Línan inniheldur víkingamussu, buxur og skyrtu, kjól og svuntu en þær stöllur vildu að stelpurnar gætu fundið á sig búning þótt Húnihún línan leggi áherslu á drengjaföt.

„Við reynum að vera trúar víkingatímanum og notum lítið meðhöndlaða bómull sem við litum sjálfar. Saumar eru grófir overlock-saumar og við notum skábönd í stað leðurbanda, höfum þetta frekar hrátt. En þó þetta séu búningar er þó alveg hægt að nota fötin dags daglega í leikskólanum. Buxurnar eru til dæmis flottar með einhverju öðru og þetta eru bómullarföt sem þægilegt er að vera í."

Ríkey og Diljá vinna nú að vorlínu Húnihún og eru einnig að bæta við rúmfatnaði. Nánar má forvitnast um Húnihún á Facebook.- rat






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.