Þar fyrir neðan eru tíu innlendar fréttir sem einnig voru mikið lesnar á árinu.
1.„Ég var hræddur um að maðurinn myndi meiða mömmu" - Bréfið allt
16. FEBRÚAR: „Mér leið ekki vel í skólanum og ég var hræddur að maðurinn myndi meiða mömmu. Ég sendi henni alltaf sms á daginn til að vita hvort hún væri ok," segir 13 ára drengur í bréfi sem hann hefur sent öllum þingmönnum.
Móðir drengsins tapaði í liðinni viku dómsmáli gegn föður þriggja dætra sinna. Móðirin var gift manninum og bjuggu þau saman í Danmörku, ásamt dætrunum og syni konunnar. Í dómnum kemur fram að hún segir manninn hafa beitt sig og börnin bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi.

10 MARS: Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður ákvað á síðustu stundu að aflýsa stóru unglingaballi sem hann ætlaði að halda á skemmtistaðnum NASA í gær.
Páll tók þessa ákvörðun eftir að hann fékk bréf frá verkefnisstjóra Heimilis og skóla sem sagði ÍTR, Velferðarráð Reykjavíkurborgar og barnaverndarnefnd hafi ályktað gegn böllum sem þessum.
„Ástæðan fyrir því að ég slaufaði ballinu er að ég vil ekki hafa á tilfinningunni að ég sé einhver glæpamaður," segir Páll Óskar.

18. JANÚAR: Tónlistarmaðurinn Sigurjón Brink, sem er betur þekktur sem Sjonni, varð bráðkvaddur að heimili sínu í Garðabæ í gærkvöldi.
Sigurjón var fæddur í Reykjavík 29. ágúst 1974. Hann lætur eftir sig eiginkonu, Þórunni Ernu Clausen, og fjögur börn. Fjölskylda Sigurjóns sendi frá sér tilkynningu um andlát hans rétt fyrir hádegi.
Sigurjón var einn af ástsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar af yngri kynslóðinni og tók meðal annars þátt í forkeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.

20. JANÚAR: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir enn eftir Matthíasi Þórarinssyni, 21 árs, en ekkert hefur spurst til hans í alllangan tíma.
Talið er líklegt að Matthías, sem er um 180 sm á hæð og ljósskolhærður, haldi til einhversstaðar á Suðurlandi en sjálfur bjó hann lengi á Stokkseyri.
Matthías, sem flutti á höfuðborgarsvæðið síðasta sumar, þykir nokkuð sérstakur í háttum og er mikill einfari. Hann ferðaðist um landið á gömlum Rússajeppa en gæti nú mögulega haft annað ökutæki til umráða.

9. FEBRÚAR: „Þetta var leiðinlegur endir á skemmtilegu kvöldi," segir Kolbrún Ósk Albertsdóttir sem ætlaði að fara í bíó með eiginmanni sínum á föstudaginn eftir að dóttir þeirra gaf þeim gjafabréf í bíó.
Kolbrún og eiginmaðurinn ætluðu að sjá myndina Sanctum en þegar þau mættu á staðinn var þeim tjáð að gjafabréfið sem þau höfðu fengið gilti einungis á myndir sem væru á almennu verði. Dýrara er á þrívíddarmyndir og íslenskar myndir en Sanctum er þrívíddarmynd.
Þess ber að geta að farsæll endir komst á málið þegar Sambíóin buðu Kolbrúnu og eiginmanninum að sjá Sanctum.
AÐRAR VINSÆLAR INNLENDAR FRÉTTIR:
JANÚAR:
Börnin skreyttu kistu Sigurjóns
Páll Arason látinn - Ánafnaði Reðursafninu liminn
FEBRÚAR:
Bjargaði pilti upp úr Tjörninni - Algjör heppni að ég sá hann
Einelti af verstu gerð
MARS:
Andlát í World Class - Lét starfsfólk vita af manninum
Ásdís Jenna á von á barni - Vonar að það verði stúlka
APRÍL:
Vaknaði úr dái eftir 5 vikur
MAÍ:
Stórkostlegt myndband - Eldingarnar leiftra í Grímsvötnum
SEPTEMBER:
Ótrúlegt myndband af slysinu í Kópavogi
DESEMBER:
Gillz kærður fyrir nauðgun
/tveir-karlmenn-a-mordvettvangi-omudust-vid-ljosmyndara/article/2011110519573 |