Þjálfa hrægamm til þess að leita að líkum Jónas Margeir Ingólfsson skrifar 4. júní 2011 13:02 Hrægammur. Myndin er úr safni.
Hrægammurinn Sherlock hefur gengið til liðs við þýsku lögregluna. Að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins mun hann vera betri en nokkur hundur eða lögreglumaður í að finna lík á stórum opnum svæðum. Sherlock er nú í þjálfun í Walsrode fuglagarðinum í Norður-þýskalandi. Þjálfarar hans og fulltrúar lögreglunnar segja haukfrá augu hrægammsins og næmt lyktarskyn hans gera Sherlock tilvalinn í leit að líkum og í raun henta betur en leitarhunda þegar leitarsvæðin eru stórgrýtt eða gróðri vaxin. Þýskir fjölmiðlar hafa fjallað um málið en dagblaðið Berliner Morgenpost segir það augljóst að þó svo að Sherlock eigi auðvelt með að finna lík gæti hann vel byrjað að kroppa í þau áður en lögreglan kemst á vettvang. Eftir helgi munu tveir hrægammar til viðbótar ganga til liðs við þýsku lögregluna, þau Miss Marple og Columbo. Að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins þykir betra að hafa þrjá fugla enda leiti hrægammar að fæði í hópum. Þá er haft eftir Reiner Hermann, lögreglufulltrúa í Hanover sem hefur umsjón með verkefninu, að bæði austurríska og svissneska lögreglan hafi haft samband við sig og vilji kaupa þjónustu hrægammana.
Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Flugferðum aflýst Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Innlent Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Erlent Flæddi inn í hús á Arnarnesi Innlent Fleiri fréttir Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Ætla að birta Gaetz-skýrsluna eftir allt saman Sjá meira