Gríðarlega mikilvægt að neyðarlögin haldi Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. apríl 2011 16:52 Árni Páll Árnason segir niðurstöðu Héraðsdóms í dag mikilvæga. Mynd/ GVA.
Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra segir að mikilvægur áfangi hafi náðst í dag þegar Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að neyðarlögin sem sett voru 6. október 2008 væru heimil samkvæmt stjórnarskrá. Það væri gríðarlegt áfall fyrir íslenska þjóð ef neyðarlögin myndu bresta. „Þetta er mikilvægur áfangi og gott að sjá að dómurinn fjallar ítarlega um þennan þátt og kemst að þeirri niðurstöðu að neyðarlögin standast stjórnarskrá og hafi ekki gengið út fyrir það sem nauðsynlegt var til þess að forða efnahagslegu hruni,“ segir Árni Páll. Árni Páll segir að neyðarlögin séu mjög mikilvægur þáttur í vörnum Íslendinga og til að viðhalda hér og ná tökum á því ástandi sem skapaðist eftir hrun. „Það er mjög mikilvægt að það sé staðfest af dómstól að þau hafi ekki náð lengra en nauðsyn krafði,“ segir Árni Páll. Hann bindur vonir við að Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóm hvað varðar neyðarlögin. „Enda væri það gríðarlegt áfall fyrir íslenska þjóð ef neyðarlögin brystu. Þau voru sett almenningi til varnar til að koma í veg fyrir að íslenskur almenningur þyrfti að bera óbærilegar byrðar vegna bankahrunsins,“ segir Árni Páll. Árni Páll segist vita til þess að á næstu dögum fari fyrir héraðsdóm ýmiss mál sem fjalli um gidli einstakra þátta neyðarlaganna þótt stjórnvöld hafi ekki fullkomna yfirsýn yfir þau. „Þar höfum við slitastjórnina til varnar í hverju tilviki fyrir sig,“ segir Árni Páll.
Mest lesið Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Innlent Blöskrar græðgi á kostnað gæða Innlent Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Innlent Tveir handteknir fyrir að dreifa röngum upplýsingum á netinu Erlent Patrik biðst afsökunar Innlent Rússar þurfi að finna fyrir stríðinu á eigin skinni Erlent Veislan tekin af dagskrá FM957 Innlent Emhoff viðurkennir að hafa haldið framhjá fyrstu eiginkonu sinni Erlent Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Innlent Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Innlent Fleiri fréttir Titringurinn á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að magnast Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Patrik biðst afsökunar Lögregla heldur þétt að sér spilunum og Bolt mætir til leiks í Reykjavík Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Blöskrar græðgi á kostnað gæða Þakka skilningsríkum foreldrum og gætu leitað réttar síns Eðlilegt að setja hálfan milljarð í framkvæmdir í Grindavík Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Veislan tekin af dagskrá FM957 „Gettó“ í Ármúla og hryðjuverkaógnin í Vínarborg Setja 470 milljónir í viðgerð í Grindavík Miklar skemmdir á bíl eftir að þyrla lenti við hliðina Dagbjört hafi leynt mikilvægum upplýsingum „Það má alveg stríða pínulítið“ Eldur í einu herbergi í íbúðarhúsnæði á Hallgerðargötu „Landsliðið“ búið að skila tillögu og von á vímuefnastefnu Ærin verkefni framundan á þingi og voðaverki afstýrt í Vín „Sorglegt og alvarlegt“ hvernig málum er komið í grunnskólum „Við mætum þessu með því að stækka fánann“ Regnbogafáninn í Hveragerði útbíaður hatursorðræðu Óboðlegt að fangaverðir eigi í hættu að stórslasast í vinnunni „Maður er bara einhvern veginn að vega salt“ Vill „alvöru úttekt“ á „alvöru úttektum“ Menn hugsi sig tvisvar um áður en þeir teppi neyðarviðbragð landsins Alvarleg gabbútköll, nýtt neyslurými og bongóblíða í bænum Hvalurinn er laus: „Þetta er kraftaverki næst“ „Alvöru úttekt“ verði gerð á máli Brákarborgar Sjá meira