Tugir segja sig úr Sjálfstæðisflokknum 3. febrúar 2011 13:51 Kristján Þór Júlíusson, situr í fjárlaganefnd fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Mikil óánægja er meðal sumra sjálfstæðismanna vegna afstöðu flokksins í Icesave málinu. Þrjátíu manns hafa sagt sig úr flokknum í dag. Kristján Þór Júlíusson segir óánægju innan flokksins ekki hafa farið framhjá neinum. Kristján er einn þeirra þriggja Sjálfstæðismanna sem sitja í Fjárlaganefnd og sendu frá sér álit í gær að rétt væri að samþykkja nýja Icesave frumvarpið. Sú ákvörðun hefur vakið mikla reiði meðal Sjálfstæðismanna. Sigríður Þorsteinsdóttir forstöðumaður samskiptasviðs segir í samtali við fréttastofu að þrjátíu manns hafi sagt sig úr flokknum í dag. Og formaður flokksins, Bjarni Benediktsson, hefur verið harðlega gagnrýndur. Spurður út í viðbrögð flokksmanna segir Kristján: „Sú óánægja hefur ekki farið fram hjá neinum." Hann segist hafa fullan skilning á því fólk sé reitt. „Ég hef samt ekki séð rökstuðning neins þeirra sem hafa sagt sig úr flokknum. Þetta er val hvers og eins." Spurður út í afstöðu sína til Icesave samkomulagsins segir Kristján: „Ég kýs að svara ekki þeirri spurningu. Ég stend hins vegar að þessu áliti og ég vil undirstrika að í þessu máli sem við höfum rætt í tvö ár kemur ekki fram svona tillaga öðruvísi en að höfðu samráði við þingflokk viðkomandi nefndarmanna." Kristján segir skýrt að „tillagan kemur fram í umboði þingflokksins." Nú stendur yfir önnur umræða um Icesave á Alþingi en Kristján Þór er á Akureyri, veikur með flensu, og getur því ekki tekið þátt í umræðunum.
Mest lesið „Þetta verður hvasst, blautt og hlýtt“ Veður Sjáðu herbergið sem Samfó vill en Sjallar neita að yfirgefa Innlent Kenndi Biden, flugmönnum, flugumferðarstjórum og „DEI“ um slysið Erlent Tilraun til stunguárásar í Hafnarfirði Innlent Sprautan sprakk og konan heppin að halda auganu Innlent Héraðsdómur vísar Kiðjabergsmáli frá dómi Innlent Segir nýja forgangsröðun jarðganga uppi á borðinu Innlent Hellisheiði lokað vegna fastra bíla Innlent Lýsa yfir hættustigi vegna yfirvofandi eldgoss Innlent Verkföllum kennara aflýst samþykki deiluaðilar tillögu ríkissáttasemjara á laugardag Innlent Fleiri fréttir Sjáðu herbergið sem Samfó vill en Sjallar neita að yfirgefa Héraðsdómur vísar Kiðjabergsmáli frá dómi Segir nýja forgangsröðun jarðganga uppi á borðinu Tilraun til stunguárásar í Hafnarfirði Tíu þúsund tillögur í 3.985 umsögnum Hellisheiði lokað vegna fastra bíla Mjög langt í milli svo ríkissáttasemjari reyni að höggva á hnútinn Björgunarskipið kallað út á mesta forgangi Kennarar svara umboðsmanni barna Vonarglæta, óveður og barátta um skrifstofur Verkföllum kennara aflýst samþykki deiluaðilar tillögu ríkissáttasemjara á laugardag „Skutlari“ áreitti stúlku og varð fyrir alvarlegri líkamsárás Lýsa yfir hættustigi vegna yfirvofandi eldgoss Langt á milli deiluaðila og reynt að höggva á hnútinn Bein útsending: Ríkissáttasemjari fer yfir innanhússtillöguna Ýtti konu fyrir bíl Missti stjórn á bílnum og rakst utan í tvo Hæstiréttur blandar sér í málið sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Skipaður skrifstofustjóri fjármála Sextíu flugferðum aflýst Sprautan sprakk og konan heppin að halda auganu Vegum um Hellisheiði og Þrengsli lokað Skilti Skúbbs þarf að fjúka í nágrannadeilum sem líkt er við stríð Lilja útilokar ekki formannsframboð og vill flýta flokksþingi Ekki ljóst hvort skýringar Sjálfstæðismanna haldi vatni Umferð um brautina gangi hægt Leggur fram innanhússtillögu Plottað um heimsyfirráð eða dauða Sterk tilfinningabönd Sjálfstæðismanna við herbergið koma Guðmundi Ara í opna skjöldu Kennaradeilan enn í hnút og mannskætt flugslys í Washington Sjá meira