Erlent

Selja börn óléttra kvenna

Þunguð kona. Myndin tengist að sjálfsögðu ekki fréttinni beint.
Þunguð kona. Myndin tengist að sjálfsögðu ekki fréttinni beint.

Búlgarska lögreglan hefur upprætt mansalshring þar í landi sem flytur þungaðar konur til Egyptalands þar sem þær eru neyddar til þess að eignast börnin og þau svo seld.

Þegar hafa fjórtán verið handteknir vegna málsins.

Konurnar eru oftast sígaunar og sumar hverjar þiggja greiðslur fyrir barnsburðin, en sjaldnast meira en þrjú þúsund evrur. Börnin eru misdýr samkvæmt búlgörskum fjölmiðlum, þannig eru drengir seldir á 25 þúsund evrur en stúlkurnar á bilinu átján til 20 þúsund evrur. eitt barn hefur verið endurheimt úr prísund sinni eftir að það var selt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×