Erlent

Stjórnarherinn segist hafa hrundið árás uppreisnarmanna

Mynd/AP
Stjórnvöld í Líbíu segjast hafa hrundið árás uppreisnarmanna á bæinn Zawiya í vesturhluta landsins. Harðir bardagar hafa geysað um bæinn undanfarnar vikur  en bærinn er um 30 kílómetra fyrir vestan Trípolí, höfuðborg landsins.

Ekki liggur fyrir hversu margir hafa látið lífið í átökunum en fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins, BBC, að mannfall í röðum uppreisnarmanna sé töluvert.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×