Erlent

Bretaprins á leið til Afganistan

Harry var síðast í Afganistan fyrir þremur árum. Þar starfaði hann á vegum breska hersins í 10 vikur.
Harry var síðast í Afganistan fyrir þremur árum. Þar starfaði hann á vegum breska hersins í 10 vikur. Mynd/AFP
Harry Bretaprins er á leið til Afganistan á vegum breska hersins, að því er fram kemur á vef Sky-fréttastofunnar. Breska varnarmálaráðuneytið hefur ekki staðfest þetta. Harry er þyrluflugmaður og var síðast í Afganistan fyrir þremur árum. Þá tók hinn 26 ára gamli prins þátt í aðgerðum hersins í 10 vikur. Við heimkomuna sagðist hann gjarnan vilja fara aftur til Afganistan.

Fyrir fjórum árum stóð til að Harry yrði sendur til Íraks en sú ákvörðun var tekin til endurskoðunar eftir ábendingar þess efnis hann yrði aðalskotmark hryðjuverkamanna og legði líf annarra breskra hermanna í hættu með veru sinni þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×