Erlent

Lét húðflúra á sig 152 Facebook-prófílmyndir

Kona í Hollandi fór nýlega heldur óhefðbundna leið að því að sýna vinum sínum væntumþykju og lét flúra Facebook-prófílmyndir þeirra allra á hægri handlegginn á sér.

Myndband sem sýnir gerð húðflúranna hefur fengið sinn skerf af neikvæðum viðbrögðum en svo virðist vera sem mörgum þyki samskiptasíðubyltingin of langt gengin þegar henni hefur verið breytt í húðflúr sem þekur heilan handlegg og harla erfitt er að losna við.

Eigandi húðflúrsins segist hæstánægð en hún bað alla þá sem nú prýða handlegg hennar leyfis áður en hún hélt á tattústofuna. Hún segir flúrið standa fyrir það hver hún er í dag og þann heim sem við búum í en auk þess þyki henni það líta ótrúlega vel út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×