Erlent

Fílar gengu berserksgang

Mikið fát varð á fólki á götum Mysore þegar fílarnir æddu þar um.
Mikið fát varð á fólki á götum Mysore þegar fílarnir æddu þar um. Mynd/AFP
Að minnsta kosti einn týndi lífinu þegar tveir villtir fílar gengu berserksgang í Mysore í suður Indlandi í dag.

Skólum í borginni var lokað í dag vegna atviksins en eftir um þrjár klukkustundir tókst að fanga fílana og þeir voru svæfðir. Fílunum verður sleppt aftur út í náttúruna þegar þeir hafa náð sér en tveir fílar til viðbótar eru þó enn sagðir ganga lausir í útjaðri borgarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×