Erlent

Fékk dauðan svan í hausinn

Óli Tynes skrifar
Tólf ára gömul norsk telpa varð fyrir þeirri lífsreynslu á mánudaginn að dauður svanur féll á hana og slasaði nokkuð. Jenny Hegg var í útilegu á smáeyju ásamt bekkjarfélögum sínum þegar þetta gerðist. Hún segir í samtali við Aftenposten að þau hafi séð þrjá svani nálgast í lágflugi.

 

Einn þeirra hafi flogið á rafmagnslínu sem börnin voru að ganga undir. Við það hafi orðið sprenging og mikill eldblossi. Hún hafi litið upp og séð svaninn stefna lóðrétt á sig. Þótt hún tæki til fótanna skall svanurinn á henni og felldi hana til jarðar. Meiðsl hennar voru ekki alvarleg, en allt rafmagn fór af eynni. Grey svanurinn var steindauður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×