Erlent

Sex til níu mánuði að ná völdum á ástandinu í Fukushima

Frá Fukushima
Frá Fukushima Mynd/AFP
Forsvarsmenn Kjarnorkuversins í Fukushima segja að það taki sex til níu mánuði að ná völdum ástandinu þar en bilað kælikerfi kjarnorkuversins hefur verið til vandræða síðan jarðskjálftInn mikli reið yfir Japan þann 11. mars.

Ítarleg áætlun hefur verið lögð fram um hvernig eigi að koma í veg fyrir leka á geislavirkum efnum frá verinu og hvernig eigI að klára að kæla of heita kjarnakljúfa.

Orkufyrirtækið sem á og rekur kjarnorkuverið hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að hafa ekki náð að leysa þessi vandamál og jafnvel gert lítið úr þeim til að byrja með.

Fyrirtækið segir að áætlanir þess gangi út á að á sex til níu mánuðum liðnum verði steypt yfir kjarnakljúfana og kjarnorkuverinu lokað.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×