Miðar í Herjólf rjúka út 27. mars 2011 16:30 Þeir sem voru búnir að hugsa sér að ferðast til Vestamannaeyja með Herjólfi yfir Þjóðhátíð verða að hafa harðar hendur því miðarnir rjúka út.
Miðsala á sumarferðum Herjólf hófst í byrjun vikunnnar og hefur sölulínan verið rauðglóandi síðan. Íslendingar sem ætla sér að fara á Þjóðhátíð næsta sumar eru greinilega með vaðið fyrir neðan sig en uppselt er að verða í allar ferðir skipsins í kringum þessa mestu ferðahelgi ársins, fjóra mánuði fram í tímann. Þegar er búið að selja upp í allar ferðir skipsins til Eyja dagana 28. og 29. júlí, sem og frá Eyjum mánudaginn 1/8. „Þetta er í fyrsta sinn sem við hjá Landeyjaröfn erum að sjá um þetta og eru miðarnir að renna út á methraða. Það er mikið að gerast í Eyjum í sumar en Þjóðhátíðin er lang vinsælust og greinilegt að fólk ætlar að tryggja sér miða tímanlega," segir Elísabet Rut Sigmarsdóttir, sölufulltrúi hjá Landeyjahöfn. Miði aðra leiðina fyrir einn kostar 1000 krónur og gert er ráð fyrir að Herjólfur sigli frá Landeyjahöfn í sumar. „Ef fólk ætlar sér að ferðast með Herjólfi á Þjóðhátíð í Eyjum mæli ég með því það hafi hraðann á." Ásgeir Örn Þorsteinsson, markaðs-og sölustjóri hjá flugélaginu Erni, sem sér um allt áætlunarflug til Eyja segist einnig vera byrjaður að finna fyrir mikilli eftirspurn á flugi til Eyja á Þjóðhátíð. „Það er mikill áhugi og við hefjum sölu í hin svokölluðu þjóðhátíðarflug um helgina. Við stefnum á að vera með eins konar loftbrú milli lands og Eyja þessa helstu daga og látum framboð mæta eftirspurn." - áp
Mest lesið Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Innlent Rússar lýsa yfir neyðarástandi Erlent Myndi fara stystu leið upp í sveit Innlent Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Innlent Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Innlent Flugvél með 62 innanborðs brotlenti í Brasilíu Erlent Patrik biðst afsökunar Innlent Umdeilt kosningamyndband Höllu „bara í gríni gert“ Innlent Blöskrar græðgi á kostnað gæða Innlent Aflýsir fundi eftir viðvörun um mögulegan ofurskjálfta Erlent Fleiri fréttir Myndi fara stystu leið upp í sveit Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Rússar lýsa yfir neyðarástandi og nýtt rafskútufyrirtæki Brutu rúður í strætóskýlum í Mjódd Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Einn slasaður eftir aftanákeyrslu í Mosfellsbæ Tveir yfirheyrðir og enn óvissa um refsiverða háttsemi Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Mikið álag sem bitnar mest á bráðamóttökunni Fjögur sóttu um embætti yfirdýralæknis Ný aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi staðfest Umferðartafir vegna áreksturs Sparkaði í meðvitundarlausan mann og skar annan í andlitið Titringurinn á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að magnast Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Patrik biðst afsökunar Lögregla heldur þétt að sér spilunum og Bolt mætir til leiks í Reykjavík Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Blöskrar græðgi á kostnað gæða Þakka skilningsríkum foreldrum og gætu leitað réttar síns Eðlilegt að setja hálfan milljarð í framkvæmdir í Grindavík Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Veislan tekin af dagskrá FM957 „Gettó“ í Ármúla og hryðjuverkaógnin í Vínarborg Setja 470 milljónir í viðgerð í Grindavík Miklar skemmdir á bíl eftir að þyrla lenti við hliðina Sjá meira