Innlent

Stal 100 lítrum af olíu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hundrað lítrum af díselolíu var stolið af gröfu sem staðsett var við Seyðishóla í Grímsnes- og Grafningshreppi. Svo mikið var tekið af gröfunni að vélin fór ekki í gang þegar til stóð að kveikja á henni í morgun. Tankurinn var alveg tómur. Við hliðina á gröfunni sást slanga sem lögreglan telur að hafi verið notuð til að dæla upp olíunni. Verðmæti olíunnar sem var stolið er um 23 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×