Of snemmt að lýsa yfir goslokum Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 25. maí 2011 18:39
Of snemmt er að lýsa yfir goslokum í Grímsvötnum segja jarðeðlisfræðingur. Enginn gosmökkur kemur upp úr gígnum en það geta enn komið sprengingar sem skjóta upp gjósku. Mjög varhugavert er að ferðast um svæðið. Gosið í Grímsvötnum hefur verið að fjara út undanfarinn sólarhring. Í gærkvöldi magnaðist gosmökkurinn upp í 7 kílómetra hæð og um 12 kílómetra í nótt. Í morgun bárust síðan þær fregnir frá ferðamönnum á svæðinu að gosinu væri lokið og einungis sjáanlegir gufustrókar eins og þessi sem Karl Ólafsson fjallaleiðsögumaður myndaði. Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, fór í leiðangur um gosstöðvarnar í dag og reyndi að komast að því hvort að gosinu væri lokið. Lítið skyggni var vegna gjóskumisturs og því gátu vísindamenn ekki skoðað gosstöðvarnar nógu vel. Þeir fengu hins vegar upplýsingar frá lítilli vél sem komst nær. „Hún tók eftir að það voru sprengingar ennþá í gígnum, þannig það er einhver virkni og þó að á sumum stundum sjáist bara litlir gufubólstrar þá sáum við þess dæmi í eftirlitsflugi í gærkvöldi að það geta ennþá verið mjög öflugar spreningar. Mökkurinn gildnar alveg fjórfalt, þetta er ekki stöðugur mökkur, þannig að það fellur gjóska mjög víða í kringum gíginn. Þannig þetta er mjög hættulegt svæði að fara á og fólk verður að fara varlega," segir Björn Oddsson, jarðeðlisfræðingur. Hann segir þetta vera eðlilega þróun á Grímsvatnagosi. „Þetta getur verið ástand sem varir í einhvern tíma, þ.e. spreningar og smá virkni og ómögulegt að segja hvort hún rífi sig upp aftur. Engan veginn hægt að lýsa yfir goslokum," segir Björn. Askan veldur enn vandræðum í Evrópu en 450 flugum var aflýst í Þýskalandi. Flugumferð í Bretlandi er þó að komast aftur í samt horf. Þá býst Evrópska loftferðaeftirlitið ekki við neinum truflunum á flugi á morgun. Íslenska öskuspáin gefur til kynna að askan muni ekki hafa áhrif á flugvelli hér á landi á morgun en mögulega mun flug yfir lofthelgi Íslands truflast vegna öskuskýsins samkvæmt upplýsingum frá Isavia.
Mest lesið Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Erlent Á bólakafi í Hólmsá Innlent Starbucks kemur ekki til Íslands Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Starmer heldur neyðarfund vegna óeirðanna Erlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Ofurölvi vistaður í fangaklefa Innlent Tók á móti fyrstu F-16 þotunum Erlent Dregur úr vindi með morgninum Veður Ólafur Vignir píanóleikari látinn Innlent Fleiri fréttir Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Aukin skriðuhætta og breytt hlutverk kirkjunnar Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjá meira