Erlent

Ástand Giffords betra

Giffords ásamt eiginmanni sínum á góðri stundu
Giffords ásamt eiginmanni sínum á góðri stundu Mynd/AFP
Þingmaðurinn Gabrielle Giffords, sem var skotin í höfuðið fyrr í mánuðinum, hefur verið flutt á endurhæfingarstöð eftir að læknar mátu ástand hennar „gott" í stað „alvarlegt."

Giffords var skotin í höfuðið 8. janúar síðastliðinn fyrir utan verslunarmiðstöð í bænum Tucson í Arizona. Hún er nú á batavegi samkvæmt læknum.

Mark Kelly, eiginmaður Giffords, sagði við fjölmiðla í dag að hún hefði horft á sjónvarpið í gærkvöldi. „Læknarnir segja okkur að þeir séu vongóðir," segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×