Innlent

Lögmaður Eiðs: Siðlaus blaðamennska

Heiðrún Lind segir umfjöllun DV vera árás í einkalíf Eiðs Smára
Heiðrún Lind segir umfjöllun DV vera árás í einkalíf Eiðs Smára
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, lögmaður Eiðs Smára Guðjohnsen knattspyrnumanns í meiðyrðamáli hans gegn blaðamanni og ritstjórum DV, mótmælir þeim málflutningi DV-manna að umfjöllun um fjármál Eiðs Smára eigi fullt erindi við almenning á sama hátt og fjármál einstaklinga sem tengjast efnahagshruninu.

Heiðrún Lind segir Eið Smára ekkert tengdan hruninu og að opinber umfjöllun um fjármál hans sé innrás í einkalífið.

„Þetta er siðlaus blaðamennska," sagði Heiðrún Lind við aðalmeðferð málsins sem nú stendur yfir í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Ingi Freyr Vilhjálmsson, blaðamaður DV sem skrifaði um fjármál Eiðs Smára í blaðið, skoraði á Eið að leggja fram gögn sem sýndu fram á að fréttaflutningurinn hafi ekki verið réttur. Eiður varð ekki við þeirri áskorun og sagði Heiðrún Lind að sannleiksgildi fréttanna skipti engu í þessu samhengi. Aðalatriðið væri friðhelgi einkalífs Eiðs Smára.

Lögmaður Reynis Traustasonar og Jóns Trausta Reynissonar er Gunnar Ingi Jóhannesson. Hann hafði óskað eftir því að Eiður Smári gæfi skýrslu við aðalmeðferðina og til stóð að hann gæfi skýrslu í gegn um síma. Fallið var frá því í morgun.

Gunnar Ingi segir í samtali við blaðamann Vísis að þetta hafi verið gert án nokkurra skýringa. Við skýrslutökuna hafði hann ætlað að spyrja Eið Smára um sannleiksgildi fréttanna en fékk ekki tækifæri til þess.

Eiður Smári fer fram á fimm milljónir króna í miskabætur frá blaðamanni og ritstjórum DV.

Aðalmeðferðin stendur enn yfir.


Tengdar fréttir

Eiður Smári bar ekki vitni

Ekkert varð úr því að Eiður Smári Guðjohnsen knattspyrnumaður bæri vitni símleiðis við aðalmeðferð meiðyrðamáls sem hann hefur höfðað á hendur blaðamanni og ritstjórum DV vegna umfjöllunar blaðsins um fjármál hans. Ingi F. Vilhjálmsson blaðamaður hafði skorað á Eið að bera vitni í málinu og til stóð að hann bæri bæri vitni símleiðis frá Englandi þar sem hann er búsettur.

Vill að Eiður Smári leggi fram sönnunargögn

Ingi Freyr Vilhjálmsson, blaðamaður á DV, skorar á Eið Smára Guðjohnsen, knattspyrnumann, að leggja fram skrifleg sönnunargögn sem sanni að fréttaflutningur af fjármálum hans sé rangur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×