Erlent

Braust inn á Facebook-síðu forseta Frakklands

Nicolas Sarkozy.
Nicolas Sarkozy.

Óprúttin tölvuþrjótur braust inn á Facebook-síðu forseta Frakklands, Nicolas Sarkozy í fyrradag og tilkynnti að hann ætlaði ekki að bjóða sig aftur fram til embættis forseta.

Sarkozy tilkynnti svo á síðunni í gær að tölvuþrjótur hefði komist inn á reikninginn og skilið eftir skilaboðin, sem innihéldu aragrúa af stafsetningavillum.

Þetta er reyndar ekki í fyrsta skiptið sem Sarkozy lendir í tölvuþrjótum því árið 2008 brutust þrjótar inn í heimabankann hans og millifærðu lága upphæð yfir á annan bankareikning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×