Innlent

Ókeypis fræðsla um Evrópuferli

Stefán Haukur Jóhannesson.
Stefán Haukur Jóhannesson. Mynd/Stefán Karlsson

Mímir-símenntun stendur næstu fimm vikur fyrir fundaröð um samningaferli og aðildarumsókn Íslands að ESB. Fyrsti fundur verður í kvöld í Ofanleiti 2, þar sem formaður samninganefndar Íslands, Stefán Haukur Jóhannesson, greinir frá samningaferlinu almennt séð.

Næsta þriðjudagskvöld verður fjallað um sjávarútvegsmál í þessu ljósi, svo um landbúnaðarmál í vikunni á eftir, þá byggðamál og loks gjaldmiðilsmál, 8. mars. Ekkert kostar á fundina og þeir eru öllum opnir, að undangenginni skráningu. - kóþ






Fleiri fréttir

Sjá meira


×