Viðskipti innlent

Kaupa þriðjungshlut í Högum

Heildarverðmæti Haga er rúmir 24 milljarðar króna.
Heildarverðmæti Haga er rúmir 24 milljarðar króna. Mynd/Anton Brink

Arion banki hefur selt dreifðum hópi lífeyrissjóða og öðrum fjárfestum 34% hlut í Högum ásamt kauprétti að 10% viðbótarhlut. Kaupverð er 4,1 milljarður. Skráning í kauphöll er fyrirhuguð síðar á árinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Hagar eru langstærsta verslunarfyrirtæki landsins og reka meðal annars Hagkaup og Bónus.

Félagið sem kaupir kjölfestuhlutinn heitir Búvellir slhf. og stærstu eigendurnir eru Hagamelur ehf., sem er félag í eigu Hallbjörns Karlssonar, Árna Haukssonar, Sigurbjörns Þorkelssonar og Tryggingamiðstöðvarinnar, Gildi lífeyrissjóður, SÍA I og fagfjárfestasjóðurinn Stefnir ÍS-5. Fram kemur í tilkynningunni að enginn hlutur sé stærri en svo að svari til 8,5% eignarhlutar í Högum. Kaupin eru fjármögnuð með eiginfjárframlögum.

„Við sjáum fyrir okkur að skráning Haga geti orðið mikilvægur áfangi í því að endurreisa íslenskan hlutabréfamarkað. Bankinn hefur verið ánægður með rekstur Haga undanfarin misseri þrátt fyrir erfitt árferði og efnahagur félagsins er traustur. Stjórnendur hafa unnið mjög gott starf og fá nú til liðs við sig hluthafahóp sem býr yfir mikilli reynslu á íslenskum smásölumarkaði,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka.

Kaupverðið er 4.140 milljónir króna. Á félaginu hvíla nettó vaxtaberandi skuldir að fjárhæð um 12,5 milljarðar króna miðað við efnahagsreikning félagsins 30. nóvember síðastliðinn og er heildarvirði félagsins samkvæmt því rúmir 24 milljarðar króna. Kaupverðið nemur 10 krónum á hlut en gengi samkvæmt kaupréttinum er 10% hærra.

Um kaupinn segir Hallbjörn Karlsson, einn af eigendum Búvalla: „Við sjáum fjárfestingu Búvalla í Högum sem langtímaverkefni og munum leggja áherslu á að félagið einbeiti sér að kjarnastarfsemi sinni. Við viljum að eignarhald félagsins verði sem breiðast, bæði í gegnum lífeyrissjóði og með beinni aðild einstakra hluthafa.“


Tengdar fréttir

Söluferlið á Högum á lokasprettinum

Viðræður Arion banka við fjárfesta um kaup á kjölfestuhlut í verslanakeðjunni Högum eru nú á lokastigi og býst bankinn við að ganga frá sölu á hlutnum á næstu vikum.

Stefnir átti hæsta tilboðið í Haga

Stefnir átti hæsta tilboðið í kjölfestuhlut í Högum, en Arion banki hefur unnið að því að selja félagið undanfarna mánuði. Nokkur kergja er sögð í öðrum sem tóku þátt í söluferlinu vegna þessa, enda um að ræða dótturfyrirtæki Arion banka.

Vilja kaupa Haga

Fjárfestarnir Árni Hauksson og Friðrik Hallbjörn Karlsson fara fyrir hópi þeirra fjárfesta sem hyggjast kaupa þriðjungshlut í Högum. Sjóður í rekstri Stefnis, verðbréfasjóðs Arion banka kemur líka að kaupunum. Samningaviðræður um kaupin standa nú yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×